Bókaþjóð í ólestri og leiðir til að gera lestur spennandi og skemmtilegan

- Fátt er eins skemmtilegt og að lesa góða bók

lestur-vid-tjald_200x133

Árlega berast ávísanir um þetta leyti inn á heimili landsmanna frá Félagi Íslenskra Bókaútgefenda og vil ég nýta tækifærið á að minna alla á að nýta þessar ávísanir áður en þær renna út - enda úrvalið mikið í hillum bókaverslana - allir á heimilinu geta fundið eitthvað fyrir sig - og stutt í að hægt verði að njóta góðrar bókar í sumarleyfinu. Þessum ávísunum er ætlað að minna okkur bókaþjóðina á að lesa meira og - því miður - þá þurfum við á svona áminningu að halda.  Því sem bókaþjóð - þá má segja að við séum í smá ólestri.

Ég legg sérstaka áherslu á að ALLIR finni sér eitthvað gott - því bókalestur er ekki eitthvað sem er bara fyrir krakka, unglinga, foreldra eða afa og ömmur. Við sem eldri erum verðum að horfa til þess að við erum fyrirmyndir - ef við lesum ekki - af hverju ætti kynslóðin sem er að vaxa úr grasi að grípa í bók - af hverju ættu þau að lesa sér til skemmtunar? 

Við hjá Hraðlestrarskólanum höfum undanfarin 34 ár hjálpað þúsundum Íslendinga að lesa bækur - ekki bara hraðar og markvissar - heldur um leið að njóta þeirra betur og því viljum við hvetja alla til að kaupa bækur í maí - og bætum við smá gulrót fyrir þig.

- BÓKATILBOÐIÐ ÞITT: Við ætlum að bæta um betur - og þú sparar þér kaupverð bókarinnar

Í ár ætlum við að bæta um betur og gera okkar í að styrkja við þetta verðuga verkefni að fá landsmenn alla til að lesa mikið meira - og bjóðum núna öllum þeim sem kaupa bók í Maí - að fá andvirði bókanna sem afslátt upp í námskeið hjá Hraðlestrarskólanum.

Þú kaupir bókina eða bækurnar núna í Maí - passar upp á kvittunina - skráir þig, vin, fjölskyldumeðlim eða einhvern nákominn á hraðlestrarnámskeið í Maí eða kaupir gjafabréf sem fermingargjöf/útskriftargjöf eða bara fyrir þig að nota seinna í sumar - skráir inn í afsláttarreitinn hjá okkur kaupvirði bókanna, kemur svo með kvittun með þér í fyrsta tíma og þú ert þannig búin/búinn að festa þér enn betra verð inn á hraðlestrarnámskeið og um leið að spara þér kaupverð bókanna.

- Lestu mikið meira með okkur í sumar

lestur-strond_150x100

Það að njóta góðrar bókar í sumarleyfinu, á ströndinni, pallinum, tjaldinu, kaffihúsinu eða úti í garði - er bara notalegt og skemmtilegt.  Það er bara eitt skemmtilegra - og það er að klára nokkrar bækur í sumarleyfinu.  Það er ekki óalgengt að nemendur af námskeiðinu hjá okkur komist upp á lagið að lesa bók á viku - sumir jafnvel að lesa fleiri en tvær og fleiri en þrjár í viku.  Því það sem fólk kemst að raun um þegar það byrjar að nýta sér nýju lestrarvenjuna - er að lestur bóka verður bara skemmtilegri þegar þú lest bókina hratt.

Ef við spáum aðeins í þetta.  Ef þú værir að horfa á mynd sem þú ert dálítið spenntur fyrir - og tækir frá 5-10 mínútur á dag til að horfa á hana - værir þannig að klára hana á 10-12 dögum eða svo. Hve skemmtileg væri myndin? Hve spennt/spenntur ertu yfir myndinni núna?

- Bókina á að lesa á 1-3 dögum

Ef þú veltir bókinni svona fyrir þér - væri þá ekki eðlilegra að klára bók á 1-3 dögum í staðinn fyrir að taka bók og lesa hana 14 dögum eða 30 dögum.  Ef bíómyndin væri leiðinleg í þetta mörgum stuttum bútum og yfir þetta langt tímabil - af hverju heldur þú að huganum þínum líði eitthvað öðruvísi við að þurfa að bíða svona lengi með að klára bókina.  Þegar þú loksins klárar hana eftir 14 daga eða 30 daga - þá ertu löngu búin/búinn að gleyma hvernig hún byrjaði.  Þú átt erfiðara með að halda þræðinum - þarft að hafa meira fyrir lestrinum - í stað þess að demba þér í verkið og njóta bókarinnar á fáeinum notalegum kvöldstundum.

- En ef lestur er svona skemmtilegur af hverju hefur dregið úr lestri

Fréttir um hve mikið hefur dregið úr lestri unglinga eru ekki nýjar fréttir fyrir okkur en á undanförnum árum höfum við spurt nemendur okkar hve mikið þeir lesa almennt og fjölgar þeim hratt sem taka aldrei upp bók sér til gamans. Í raun er það ekki skrýtið í nútímaheimi - þegar bókalestur er að keppa um athygli unglings og draga hann frá íþróttum, tölvum, interneti, kvikmyndum og tölvuleikjum.  Ef okkur finnst ekki skemmtilegt og ánægjulegt að lesa bækur - þá gerum við það ekki.  Við framkvæmum ekki leiðinleg verk.

- Lesturinn þarf að vera eftirsóknarverður, skemmtilegur og spennandi

Lykillinn að því að fá unglinginn (eða í raun hvern sem er) til að fara að lesa meira - þá þarf að gera lesturinn eftirsóknarverðan, skemmtilegan og spennandi. Hverjir lesa í kringum okkur? Hverjar eru fyrirmyndirnar? Bendi í því skyni á mjög góða grein metsöluhöfundarins James Patterson um það hvernig á að fá unga fólkið til að lesa meira.

Lestraránægjan - líkt og á við um allt annað - helst í hönd við lestrarfærni og orðaforða - hve góð við erum að lesa - og ef við lesum ekki - nú þá erum við ekki að bæta lestrarfærni eða að byggja upp orðaforða.  Hér kemur hraðlestartæknin og þjálfunarferlið inn.  Það er auðvelt að bæta lestrarfærni - allir geta bætt sína lestrarfærni.

- Lestrarfærni er hægt að þjálfa eins og alla aðra færni

stulka-les-grasi_200x133

Alveg nákvæmlega eins og þegar við bætum hlaupafærni og þol með æfingum - bætum við lestrarfærni okkar með markvissum þjálfunaraðferðum. Þeim mun meiri tími sem við setjum í að lesa - þeim mun meira þjálfum við færni - þeim mun betri verðum við - og höfum þeim mun meira gaman af lestrinum.  Þetta er ekki flókið.

Mikill meirihluti nemenda talar um að þau hafi loksins gaman að því að lesa eða njóti þess betur eftir námskeiðið að lesa skáldsögur.  Bendi á nokkrar umsagnir þeirra hér að neðan.

Stór hluti nemenda ætlar sér og sér fram á að tvöfalda eða jafnvel þrefalda þann fjölda af bókum sem þau lásu áður.  Ástæðurnar eru margar en kannski aðallega að lesgleðin er meiri - þau njóta bókanna betur - klára þær fyrr - og hafa ekki samviskubit yfir tímanum sem fer í lesturinn því þau eiga meiri tíma af því að þau lesa hraðar.

Umsagnir nemenda af Hraðlestrarnámskeiði:

  • “...finnst gaman að lesa góðar bækur og nú get ég lesið enn fleiri bækur en áður.” - Guðrún Mist, 18 ára nemi
  • “...fannst alltaf leiðinlegt en núna hlakka ég bara til...” - Petrea Aðalheiður, 20 ára nemi
  • “Hef alltaf haft gaman af því að lesa en verið frekar lengi að því.  Finnst skemmtilegra að lesa núna og lýk bók mikið fyrr.” - Anna, 51 árs fulltrúi
  • “...á eftir að lesa meira en ég gerði áður en ég fór á námskeiðið.” - Hrafnhildur M. Jóhannesd., 19 ára nemi
  • “Mér finnst loksins gaman að lesa!” - Rannveig, 20 ára lögfræðinemi
  • “Loksins get ég farið að lesa mér til gamans...” - Ása Björk Valdimarsdóttir, 21 árs nemi/vaktstjóri
  • “Aukinn hraði gerir efnið áhugaverðara.” - Kristín Haraldsdóttir, 44 ára Verkfræðingur
  • “...drekki í mig bækur heima sem mig hefur lengi langað til að lesa.” - Guðbjörg Jónsd. 40 ára Kennari
  • “...verð að segja að lestur bóka finnst mér nú orðinn töluvert skemmtilegri.” - Steingrímur Jón Guðjónsson, 26 ára þjónustustjóri
  • “Áhugi minn á lestri stórjókst við að lesa á meiri hraða.” - Róbert, 27 ára hópstjóri
  • “Nenni loksins að byrja að lesa.” - Sigríður Elíasd., 18 ára nemi
  • “...hélt að lestur væri leiðinlegur. Hraðlestrarskólinn sýndi mér að lestur er ekki bara auðveldur, heldur líka skemmtilegur.” - Kristján Geirsson, 20 ára nemi
  • “...námskeiðið...hefur aukið áhuga hjá mér að lesa fleiri bækur.” - Íris Atladóttir, 17 ára nemi
  • “Ég las hratt fyrir og les mikið á hverjum degi, en maður minn – þetta er enná skemmtilegra núna.” - Bryan A. Smith, 25 ára kennaranemi
  • “...mun skemmtilegra að lesa.” - Margrét Rán, 20 ára löfræðinemi
  • “Einföld leið til að rífa upp...áhuga á lestri.” - Þórhildur, 18 ára nemi
  • “...mér finnst skemmtilegra að lesa núna, því ég les hraðar.” - Liney Sif, 18 ára nemi
  • “Það er miklu skemmtilegra að lesa bækur þegar maður kemst hratt yfir þær!” - Gyða Guðjónsdóttir, 34 ára Rekstrarstjóri

Kíktu á umsagnir nemenda á www.h.is/umsagnir

 

Smelltu á slóðina hér til hliðar til að sækja afsláttarmiðann þinn - prentaðu hann út og komdu með hann og kvittun fyrir bókakaupum með þér í fyrsta tíma

BÓKATILBOÐIÐ ÞITT:

  1. Þú kaupir bókina eða bækurnar núna í Maí
  2. Passar upp á kvittunina
  3. Skráir þig, vin, fjölskyldumeðlim eða einhvern nákominn á hraðlestrarnámskeið í Maí eða kaupir gjafabréf sem fermingargjöf/útskriftargjöf eða bara fyrir þig að nota seinna í sumar
  4. Skráir inn í afsláttarreitinn hjá okkur við skráningu kaupvirði bókanna
  5. Kemur svo með kvittun og þennan afsláttarmiða með þér í fyrsta tíma og þú ert þannig búin/búinn að festa þér enn betra verð inn á hraðlestrarnámskeið og um leið að spara þér kaupverð bókanna

Rafbókin og Kindle-lestölvan: Loksins er lesandinn er við stjórnvölinn

Það fer ekki mikið fyrir Kindle lestölvunni

Þetta blogg er byggt á fríbæklingnum um lestur á Kindle - Kindle-lestölvan: Loksins er lesandinn við stjórnvölinn - þú getur sótt bæklinginn á http://www.h.is/kindle 

Ég er er gallharður lestrarhestur og bókaunnandi.  Á dauða mínum átti ég frekar von en að falla fyrir því að lesa af tæki.  Þó er það þannig að ég sá ekkert annað fært en að skrifa þessa grein og útskýra hvernig það gat gerst að ég fór út af sporinu og af hverju ég féll kylliflatur fyrir þessu skemmtilega lestrarformi.

 Í dag er það þannig að ef ég hef val á milli bókar í prentaðri útgáfu eða á rafrænu formi fyrir Kindle lestölvuna mína - þá vel ég Kindle. Í öllu lesefni. Það sem gerir lestur svo þægilegan á Kindle er hve auðveldlega þú getur mótað textann þinn. Þú getur lesið með því móti sem hentar þér fullkomlega. Hingað til - allt frá því að Gutenberg kom með sína fyrstu bók úr prentsmiðjunni - þá var það útgefandi/prentari bókarinnar sem stjórnaði leturgerð og leturuppsetningu.

Á Kindle stjórnar þú þessu. Þú ert við stjórnvölinn. Viltu hafa letrið? Hvernig letur viltu hafa? Hve þéttan viltu hafa textann? Hve breiðan dálk?  Þetta er allt á þínum höndum í dag - og af hverju skiptir það þig máli? Skoðum málið.

Opna bók
Þú stjórnar að öllu leyti hvernig þú formar textann - Loksins!

Þegar þú sest og ætla að byrja að lesa ertu enga stund að sækja bókina og byrja að lesa. Ef þú varst að lesa í ákveðinni bók þegar þú hættir seinast þá byrjar hún sjálfvirkt þar og þú getur því haldið áfram þaðan sem frá var horfið. Það tekur um 1-2 sekúndur fyrir skjáinn að setja textann upp og þú byrjar.

Fletta bók

Það að fletta í Kindle er mun þægilegar heldur en í almennu bókaformi. Þú getur í öllum tilfellum lesið með því að nota bara eina hendi. Það að fletta er eingöngu spurning um að ýta á takka - Kindle er síðan tæpa sekúndu að setja nýjan texta upp fyrir þig. Tekur því varla fyrir þig að blikka augunum - sérstaklega ef bókin er spennandi. Jafnvel þegar lesið er á miklum hraða líkt og ég geri sjálfur þá er hraði ekki vandamál. Þú lendir oft í vandræðum með það að fletta í almennum bókum þegar þú lest mjög hratt - þó það sé til einföld tækni til þess að fletta hraðar - en þetta er mun þægilegra.

Leturstærð

Leturstærð stjórnar þú sjálfur - og eru átta stærðarmöguleikar í boði - og er það í allra fyrsta skipti sem þú færð að móta textann svona vel. Hingað til hefur þetta legið hjá útgefanda og þeir oft að koma stóru ritverki fyrir á litlu formi - sérstaklega átti þetta við vasabrotsform bóka. Letrið stundum svo smátt að jafnvel þótt þú notaðir ekki gleraugu almennt - þá þurftir þú stækkunarglerið. Ef þú notar gleraugu þá getur þú nú stækkað eða minnkað letur eins og þér hentar best. Ég hef  alltaf mælt með því að vera með stærra letur en of smátt. Það er auðveldara fyrir okkur að lesa þegar augun sjá textann mjög greinilega. Hugurinn er fljótari að meðtaka orðið og átta sig á því. Lesturinn fyrir vikið verður hraðari.

Leturgerð

Þú stjórnar líka leturgerðinni á Kindle - það eru þrír valmöguleikar fyrir þig í boði. Venjulegt Sans-letur - Þétt Sans-letur og svo Sans Serif. Á tölvuskjá og við lestur á tölvuformi hefur það sýnt sig að Sans Serif er mun þægilegra. Í almennum bókum er Sans-leturgerðin nánast allsráðandi en þegar þú nærð að forma letrið eins vel og þú getur á skjá - þá er Sans Serif - mun þægilegri valmöguleiki. Þegar augun okkar eiga svona auðvelt með að sjá orðið og greina það - þá eru skilaboðin að berast hraðar upp í hugann - og þeim mun fyrr getum við tekist á við næsta orð og þannig er lestrarhraðinn okkar meiri.

Línubil

Þú stjórnar líka línubili í Kindle - lítið, meðal og stórt bil - og er það að auðvelda lesturinn enn frekar. Þegar línubil er mjög lítið - líkt og almennt gerist í bókum - textinn þá mjög þéttur, þá er mjög algengt að fólk fari línuvillt. Það er til dæmis ein ástæðan fyrir því að nota fingur, penna eða blýant við lesturinn. Þegar þú færð val um að auka bilið þá skaltu alltaf velja meira bil. Textinn verður ekki eins þjappaður - hver lína sker sig meira úr - líkurnar á því að þú farir línuvillt eru núna litlar sem engar.

Orðafjöldi í línu

Þú stjórnar líka orðafjölda í línu - fá, færri, grunnstilling.  Þetta er mikil bragarbót frá lestri almennra bóka.  Sumar bækur hafa þægilega breiðan dálk (8-11 cm) og er ekkert erfitt að eiga við textann þannig.  Á þetta sérstaklega við um skáldsögur og texta á almennu formi, sérstaklega vasabrotsforminu.  Þegar kom að sérstökum bókum, kennslubókum eða bókaform með aðra blaðsíðustærð en vanalegt er.  Þá kom það stundum fyrir að textinn væri settur í dálk sem náði yfir alla síðuna - gat stundum verið 14 cm eða meira.  Hér dregur mikið úr hraða og einbeitingu hjá okkur. 

Skiptir engu hvort þú lest af skjánum lárétt eða lóðrétt þú mótar hann að vild.

Augun okkar eiga mjög auðvelt með að ráða við línur og texta í dagblaðsformi - þar sem dálkurinn er ekki með nema um 6-8 orð í línu.  Þetta gerir lesefnið mjög þægilegt og auðlesið.  Við náum alltaf að lesa hraðar og með mun meiri einbeitingu þegar dálkurinn er þrengri.  Á Kindle getur þú lesið á lestölvuna með því formi sem þú vilt.  Hvort sem þú snýrð Kindle lóðrétt eða lárétt - þá getur þú formað textann í tengslum við það.  Vertu alltaf með stillt á fæst orð - 5-7 orð í línu.  Þú ert fljótari að lesa út línuna og þú nærð þannig með þjálfun auðveldlega að lesa upp undir línu í einu.  Þegar þangað er komið ertu bara að skanna textann niður síðuna og síðan bara flett með einum hnappi.  Einfalt.

Mismunandi lesefni - mismunandi áherslur

Skáldsögur eru auðvitað langþægilegastar því þar er eingöngu texti og þú getur notið hans fullkomlega. Almennar handbækur eru líka mjög þægilegar og sá eiginleiki Kindle að þú getir feitletrað og skrifað inn athugasemdir er bara til hjálpar en margfaldast við það að þú getir síðan sótt textaskjal af Kindle og á netinu - með glósum og athugasemdum sem þú skrifaðir. Þú ert því ekki lengur að handskrifa glósur upp úr bókum eins og stundum var þegar þú fannst eitthvað merkilegt. Þú sækir það bara inn á netið.

Þær bækur sem eru kannski óþægilegastar að lesa á Kindle eru tæknilega handbækur - þar sem mikið er um myndir, teikningar eða slíkt. Amazon leysir þetta þó fyrir þig. Þú getur sett upp Kindle lesforrit í hvaða tölvu sem er. Þegar þú ert að lesa þetta tæknilegar bækur - þá getur þú blandað lestri á almennri tölvu og Kindle lestölvunni með auðveldum hætti.

Lestrarhraði = lestrargleði

Öll þessi skref sem ég benti þér á í síðustu grein hjálpa þér að lesa bókina mun hraðar á Kindle - og þú vilt ná meiri hraða. Því lestrarhraðinn þinn hefur mikið að gera með lestrargleði og lestraránægju. Það sem meira er lestrareinbeiting og lestrarskilningur er líka að aukast við það að lesa hraðar. Af hverju?  Ja - það er von að þú spyrjir. Almennur lesandi er jafnan að lesa bók á um 240-300 orðum á mínútu. Þessi lestrarhraði dettur jafnan mikið niður í þungu lesefni eða lesefni á erlendu tungumáli - og við um leið höfum ekki eins gaman af efninu.

Ástæðan fyrir þessu er tiltölulega einföld. Lágmarks vinnsluhraði hugans þegar hann er að vinna með orð er í kringum 400 orð á mínútu. Hugurinn getur auðvitað farið mikið mun hraðar en þarna liggur lágmarkshraði hugans.

Þegar þú ert að lesa í kringum 200 orð á mínútu í lesefni - og hugurinn þinn ræður við 400 orð - þá hefur hugurinn núna um 200 orða á mínútu vinnsluhraða sem er ekki notaður. Hvað gerist? Jú - hugurinn þinn fer að nota þennan ónýtta hraða til að hugsa um kvikmyndina sem þú sást í gær í sjónvarpinu, hvað þú ætlar að vera með í matinn í kvöld, hvað þú ætlar að borða í hádeginu, textaskilaboðin sem komu áðan, pósturinn sem bíður í pósthólfinu, verkefnin sem þú þarft að klára fyrir næstu viku...

...og hvað gerist? Jú - Hugurinn þinn er kominn eitthvert allt annað og þegar þú rankar við þér veltir þú fyrir þér. Humm - um hvað var ég að lesa?  Kannast þú við þessa tilfinningu?

Lausnin við þessu er að auka lestrarhraðann þinn. Koma honum að lágmarki upp að 400 orðum eða hærra. Þegar þangað er komið fær hugurinn þinn ekki lengur tækifæri til að hugsa um neitt annað. Hann þarf núna að hafa sig allan við - að meðtaka og skilja efnið sem þú ert að fara yfir.

Hraður lífsmáti nútímans - yfirfærður á bókina

Í nútímaheimi erum við vön þessum hraða - því við vinnum almennt mjög hratt. Upplýsingastreymið sem við vinnum með; í persónulegum samskiptum, í tölvum, í gegnum síma, í gegnum tölvuleiki eða þegar við horfum á kvikmyndir og sjónvarp - gerist allt mjög hratt. Nema þegar við tökum upp bók en þá eru mörg okkar enn að lesa á sama hraða og með sömu lestrarvenju og við lærðum þegar við vorum 5-7 ára - og höfum lítið sem ekkert uppfært síðan þá.

Skjárinn sem þú lest af er mjög tær og auðvelt að lesa - hvort sem birtan er mikil eða lítil

Meðallesandi er að lesa í kringum 240-300 orð, meðalnámsmaður er að lesa í námsbókum í kringum 100-150 orð á mínútu í sínum þunga texta. Hann er því að lesa á ¼ af þeim hraða sem hann ætti að geta gert. Er það furða að það sé svona auðvelt að sofna yfir skólabókunum eða skáldsögunni!

Þegar þú lest efnið á ¼ hraða þá er efnið ekki eins lifandi, það er ekki eins spennandi. Efnið verður alltaf áhugaverðara þegar þú lest það hraðar. Einfalt dæmi er þegar við horfum á mynd í sjónvarpi. Ef við erum að horfa á góða spennumynd í sjónvarpinu og ákveðum síðan að horfa á þessa mynd á ¼ hraða. Hve spennandi er myndin núna? Ekki mjög áhugaverð - því get ég lofað þér.

Það sama á við um lestur efnis. Ef kvikmyndin er ekki spennandi á ¼ hraða þá getur þú ímyndað þér hvernig huganum þínum líður þegar þú lest bókina á ¼ hraða.  Huganum okkar líður alveg nákvæmlega eins - honum leiðist. Efnið er einfaldlega ekki mjög spennandi á ½-¼ hraða. Um leið og þú eykur hraðann verður efnið meira lifandi, því þú ert að færa þig nær þeim hraða sem þú ert almennt að vinna á dags daglega.

Ekki hika við að kynna þér lestur á Kindle frekar með því að næla þér í ókeypis bækling á www.h.is/kindle eða taka þátt í umræðunni á Facebook. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband